Framtíðarsýn Festu er að íslensk fyrirtæki verði þekkt fyrir samfélagsábyrgð sína, ábyrga umgengni um náttúruna og þann ávinning sem þau skapa fyrir samfélagið.
Hlutverk Festu er að efla samfélagsábyrgð íslenskra fyrirtækja, auka vitund í samfélaginu og hvetja til samstarfs og aðgerða á þessu sviði.
Í sinni einföldustu mynd felst samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja og stofnana í því að þau axli ábyrgð á þeim áhrifum sem þau hafa á umhverfið, samfélagið og vinni eftir ábyrgum stjórnarháttum.
Fyrirtæki sýna ábyrgð gagnvart umhverfinu með því að lágmarka mengun, losun úrgangs og rask á náttúruna með sjálfbærni að leiðarljósi svo komandi kynslóðir geti líka nýtt sér gæði jarðar.
Ábyrg fyrirtæki taka tillit til fólks og þeirra sem eiga hagsmuna að gæta af starfsemi þeirra svo að af skapist gagnkvæmur ávinningur til handa samfélagi og fyrirtækjunum sjálfum.
Fyrirtæki starfa eftir ábyrgum stjórnarháttum ef þau innleiða formlegt verklag sem skilgreinir ábyrgð stjórnar og starfsmanna, tryggir gagnsæi í eignarhaldi og fjármálum, og stuðlar að siðrænum viðskiptum.
Samfélagábyrgð fyrirtækja miðar að jafnvægi þar sem úr verður gagnkvæmur ávinningur fyrir samfélagið og fyrirtækin sjálf. Ábyrg félög eru þau sem með markvissum hætti skipuleggja starfsemi sína þannig að þau skaði ekki samfélagið og umhverfið heldur hafi jákvæð áhrif á þróun samfélagsins.
Eftirfarandi fyrirtæki, stofnanir og félög eru aðilar að Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð: