Aðalfundur Festu 2017

Aðalfundur Festu 2017

Hvenær:         27.4.2017 kl. 16.00 – 18.00
Hvar:               Háskólanum í Reykjavík
Fyrir hverja:   Félaga í Festu sem skuldlausir eru viku fyrir aðalfund

Á dagskrá aðalfundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf:

1) Skýrsla stjórnar

2) Reikningar liðins reikningsárs

3) Breytingar á samþykktum félagsins

4) Skipan í stjórn

5) Kjör skoðunarmanns reikninga

6) Önnur mál

Óskað er eftir framboðum til stjórnar Festu. Þeir félagar hafa kjörgengi og kosningarétt sem eru skuldlausir við félagið viku fyrir aðalfund. Kosið verður um þrjá aðalmenn til tveggja ára og einn varamann til tveggja ára.

Áhugasamir eru beðnir að ræða við Finn Sveinsson, fráfarandi formann ([email protected]), Svavar Svavarsson ([email protected]) eða Aðaheiði Snæbjarnardóttur ([email protected]) fráfarandi stjórnarmenn í Festu, en þau mynda nefnd sem hvetur til framboða fyrir aðalfundinn.

Breytingatillögur á samþykktum þurfa að hafa borist formanni eða framkvæmdastjóra í tölvupósti þremur vikum fyrir aðalfund, sumsé í síðasta lagi 6. apríl.

Samþykktir félagsins má finna á vef Festu hér.

Skráning á aðalfundinn hér

Staðsetning

  • Háskólinn í Reykjavík
  • Menntavegi 1
  • 101 Reykjavík

Fyrir hverja

  • Félaga í Festu

Hafa samband

[email protected]