Samfélagsábyrgð í ársreikningum

Samfélagsábyrgð í ársreikningum

Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og  Félag löggiltra endurskoðenda standa fyrir morgunfundi um ný ákvæði í ársreikningalögum um að stór fyrirtæki skuli nú gera árlega grein fyrir samfélagsábyrgð sinni á umhverfið og samfélagið sem þau starfa í (66. Gr. d, um ófjárhagslega upplýsingagjöf).

Þessi breyting á ársreikningalögum á við stór fyrirtæki sem uppfylla skilyrði laganna og teljast einingar tengdar almannahagsmunum. Breytingarnar endurspegla auknar áherslur út um allan heim um að fyrirtæki sýni fram á hver áhrif þeirra eru á umhverfið og samfélagið. Á fundinum verður leitast við að varpa ljósi á hvað lögin þýða fyrir íslensk fyrirtæki, en jafnframt verður miðlað lærdómi Dana af slíku lagaákvæði sem hefur verið í gildi þar í nokkur ár.

Hvenær:         28.2.2017 kl. 8.30 – 10.00, skráning og kaffi frá kl. 8.00
Hvar:               Grand Hótel Reykjavík
Fyrir hverja:  Alla þá sem hafa með ársreikninga fyrirtækja að gera (skrá sig hér).
Verð:               kr. 4.900 fyrir félaga í Festu og  FLE Kr. 8.900 fyrir aðra.
Einingar:        Fundurinn gefur 1,5 punkta fyrir félaga FLE (reikningsskil og fjármál)

 

Dagskrá frá kl 8.30 – 10.00

„AF HVERJU ÉG?“ – tilgangur og hugmyndafræði laganna.
Harpa Theodórsdóttir, sérfræðingur hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Um samfélagsábyrgð og hvað lögin hafa í för með sér fyrir fyrirtæki
Eva Margrét Ævarsdóttir, lögmaður hjá Arion banka

Um framkvæmd og reynslu af sambærilegum reglum í Danmörku
Stefán Freyr Einarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi

Fundarstjóri: Ketill Berg Magnússon, Festu

Skráning hér

Staðsetning

  • Grand Hótel Reykjavík
  • Sigtúni 38
  • 105 Reykjavík

Fyrir hverja

  • Alla sem hafa með ársreikninga fyrirtækja að gera

Hafa samband

[email protected]