Yfir 260 fyrirtæki með í yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu

Yfirlýsing um ábyrga ferðaþjónustu var undirrituð af forsvarsfólki yfir 250 fyrirtækja (eru orðin rúmlega 260 þegar þetta er skrifað) í Háskólanum í Reykjavík þann 10. janúar að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem er verndari verkefnisins. Það eru Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Íslenski ferðaklasinn sem standa að verkefninu í samstarfi við Ferðamálastofu, SAF, Íslandsstofu, Stjórnstöð ferðamála, Markaðsstofur landshlutanna, Höfuðborgarstofu og Safetravel.

Ábyrg ferðaþjónusta er hvatningarverkefni um að fyrirtæki tengd ferðaþjónustu sammælist um nokkrar skýrar og einfaldar aðgerðir um ábyrga ferðaþjónustu

Aðspurð sagði Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, klasastjóri Íslenska ferðaklasans að þessi mikli áhugi á samfélagsábyrgð í ferðaþjónustunni lýsti útbreiddri vitund í greininni um hversu dýrmætt orðspor ferðaþjónustunnar er. Það orðspor skapi allir sem koma að ferðaþjónustunni með athöfnum sínum.

Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að Ísland verði ákjósanlegur áfangastaður ferðamanna um ókomna tíð sem styður við sjálfbærni fyrir komandi kynslóðir þjóðarinnar. 

Áhersluþættirnir eru:
1. Ganga vel um og virða náttúruna.
2. Tryggja öryggi gesta okkar og koma fram við þá af háttvísi.
3. Virða réttindi starfsfólks.
4. Hafa jákvæði áhrif á nærsamfélagið.

Markmið hvatningarverkefnisins er m.a, að:

  • Styðja við ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja vinna markvisst að sjálfbærni og samfélagsábyrgð.
  • Setja fram skýr skilaboð frá fyrirtækjum um að þau vilji vera ábyrg.
  • Draga fram það sem vel er gert á sviði sjálfbærni og samfélagsábyrgðar í ferðaþjónustu.
  • Vera hvatning fyrir fyrirtæki sem ekki eru byrjuð að huga að sjálfbærni og samfélagsábyrgð.

Yfirlýsingunni verður fylgt eftir með fræðsludagskrá fyrir fyrirtæki um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Nánari upplýsingar og skráningarform er að finna á vef Festu.

 

Ketill Berg Magnússon, framkvæmastjóri Festu segir það ánægjulegt hve mörg fyrirtæki í ferðaþjónustu eru tilbúin að heita því af sjálfdáðum að setja sér mælanleg markmið og aðgerðir um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Þetta sé á vissan hátt svar við ákalli ferðamanna og þjóðarinnar um að umhverfisvernd, góð þjónusta og sanngjarnir viðskiptahættir ættu að einkenna ferðaþjónustu á Íslandi.

 

Verndari verkefnisins er forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson (hér má nálgast ræðu forseta).

Forsetinn sagðist í ávarpi sínu „fagna því þess vegna að þið komið hér saman til að lýsa yfir stuðningi við ábyrga ferðaþjónustu í landinu, að frumkvæði Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð og Íslenska ferðaklasans. Mér er það heiður og ánægja að gerast verndari þessa verkefnis“.

 

Samstarfsaðilar okkar í verkefninu eru Safetravel – Stjórnstöð ferðamála – Markaðsstofur Landshlutanna – Íslandsstofa – Ferðamálastofa – SAF – Höfuðborgarstofa.

Eftirtalin fyrirtæki eru bakhjarlar verkefnisins: Icelandair Group – Eimskip – Landbankinn – Isavia – Bláa Lónið – Gray Line Iceland og Íslandshótel.

 

Ljósmyndir af undirritun yfirlýsingar um ábyrga ferðaþjónustu má nálgast hér.

Nánari upplýsingar veita,
Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu – S: 898-4989
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, klasastjóri Íslenska ferðaklasans – S: 861-7595

 

Comments are closed.