Aðalfundur Festu fer fram 27. apríl í Háskólanum í Reykjavík

Aðalfundur Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð fer fram fimmtudaginn 27. apríl 2017 í Háskólanum í Reykjavík.

Á dagskrá aðalfundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf:

1) Skýrsla stjórnar

2) Reikningar liðins reikningsárs

3) Breytingar á samþykktum félagsins

4) Skipan í stjórn

5) Kjör skoðunarmanns reikninga

6) Önnur mál

Óskað er eftir framboðum til stjórnar Festu. Þeir félagar hafa kjörgengi og kosningarétt sem eru skuldlausir við félagið viku fyrir aðalfund. Kosið verður um þrjá aðalmenn til tveggja ára og einn varamann til tveggja ára.

Áhugasamir eru beðnir að ræða við Finn Sveinsson, fráfarandi formann ([email protected]), Svavar Svavarsson ([email protected]) eða Aðaheiði Snæbjarnardóttur ([email protected]) fráfarandi stjórnarmenn í Festu, en þau mynda nefnd sem hvetur til framboða fyrir aðalfundinn.

Breytingatillögur á samþykktum þurfa að hafa borist formanni eða framkvæmdastjóra í tölvupósti þremur vikum fyrir aðalfund, sumsé í síðasta lagi 6. apríl.

Samþykktir félagsins má finna á vef Festu.

Skráning á aðalfundinn fer fram hér.

Comments are closed.