Stjórnmálaleiðtogar sammála Festu

Stjórnmálaleiðtogar telja fyrirtæki hafa jákvæð áhrif á samfélagið

Leiðtogar stjórnmálaflokkanna eru sammála Festu – miðstöð um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, um að íslensk fyrirtæki
hafi jákvæð áhrif á samfélagið samkvæmt könnun sem Festa framkvæmdi.

Leiðtogar Bjartrar Framtíðar, Framsóknarflokksins, Viðreisnar, Vinstri Grænna, Samfylkingarinnar og Pírata svöruðu könnuninni en starfsmaður Valhallar svaraði fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Miðflokkurinn svaraði því að ekki væri búið að móta stefnu þegar kemur að samfélagsábyrgð. Ekki bárust svör frá Flokki fólksins.

75% leiðtoganna telja fyrirtæki hafa mjög góð áhrif á samfélagið en 25% telja fyrirtæki hafa frekar góð áhrif á samfélagið. Einungis rúmur helmingur Íslendinga eru á sama máli en 51,9% telja fyrirtæki hafa mjög eða frekar jákvæð áhrif á samfélagið. Það gefur til kynna að almenningur hér á landi beri töluvert minna traust til fyrirtækja á Íslandi en í nágrannalöndum á borð við Danmörku og Írland.

Samfélagsábyrgð felst í því að fyrirtæki axli ábyrgð á áhrifum sínum á samfélagið og umhverfið og snertir velflesta þætti í starfsemi fyrirtækja. Viðskiptasiðferði, umhverfismál, vinnuvernd, jafnrétti og aðgerðir gegn spillingu eru lykilhugtök þegar kemur að samfélagsábyrgð.

„Huga þarf að því hvernig mismunandi rekstrartegundir skila skyldum sínum gagnvart samfélaginu í heild og hvar ábyrgð liggur en það á að vera sem einfaldast að standa skil af skyldum og sem erfiðast að forðast ábyrgð,“ sagði Eva Pandóra Baldursdóttir, þingmaður Pírata.

„Samfélagslega ábyrg fyrirtæki eiga að samþætta væntingar til sín um samfélagsþætti, umhverfi, siðferði, mannréttindi og neytendamál inn í starfshætti sína, til að koma í veg fyrir tjón, sóun og spillingu og skapa sameiginleg verðmæti fyrir fyrirtæki, haghafa og samfélag,“ sagði Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.

„Fyrirtækin þurfa í ríkara mæli að tileinka sér hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og vera hreyfiafl í vernd náttúrunnar. Þau þurfa að tryggja að starfsmenn hafi þekkingu á sjálfbærni og koma fram við viðskiptavini af ábyrgð og sanngirni,“ svaraði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.

Hægt er að sjá svör allra stjórnmálaflokkanna sem svöruðu könnuninni hér.

Spurningum svarar Framkvæmdarstjóri Festu, Ketill B. Magnússon í síma 898-4989.

Comments are closed.