Mannabreytingar hjá Festu

Skúli Valberg, sem nýverið tók við sem framkvæmdastjóri Festu hefur sagt starfi sínu lausu vegna heilsubrests. Stjórn Festu þakkar Skúla fyrir stutt en góð kynni og óskar honum velfarnaðar.

Á sama tíma býður Festa, Erlu Tryggvadóttur velkomna í starf verkefnastjóra fyrir miðlun og viðburði. Hún mun efla miðlunarstarf Festu og halda utan um þá fjölmörgu viðburði sem miðstöðin skipuleggur í samstarfi við samstarfsaðila sína.

Erla er jafnframt starfandi framkvæmdastjóri Festu. Hún er með meistaragráðu (MSc.) í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stundar nú MBA nám við sama skóla. Erla er jafnframt með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Erla hefur mikla reynslu úr auglýsingageiranum og fjölmiðlum, en hún hefur meðal annars starfað sem viðskiptastjóri hjá auglýsingastofunni Brandenburg og við dagskrárgerð hjá RÚV. Netfang hennar er [email protected] og síminn er 772-1091.

Comments are closed.