Þekkirðu framúrskarandi ferðaþjónustufyrirtæki?

Íslenski ferðaklasinn og Festa standa að hvatningaverkefninu um Ábyrga ferðaþjónustu óska eftir tilnefningum um fyrirmyndarfyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu fyrir árið 2018.

Sérstök verðlaun verða afhent á degi Ábyrgrar ferðaþjónustu á ráðstefnu sem fram fer í Veröld – húsi Vigdísar fimmtudaginn, 6. desember kl. 08.39-10.00. Verðlaunin afhendir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins.

Leitað er eftir ábyrgum ferðaþjónustufyrirækjum sem:

  • Ganga vel um og virða náttúruna
  • Tryggja öryggi gesta okkar og koma fram við þá af háttvísi
  • Virða réttindi starfsfólks
  • Hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið

Ætlast er til að í rökstuðningi með tilnefningunni:

  1. Hefur fyrirtækið birt markmið um ábyrga ferðaþjónustu á vef sínum? (slóð)
  2. Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um að ganga vel um og virða náttúruna?
  3. Hvernig mælið þið öryggi ferðamanna og háttvísi í þeirra garð?
  4. Getur þú gefið dæmi um markmið fyrirtækisins um réttindi starfsfólks?
  5. Getur þú gefið dæmi um hvernig fyrirtækið hefur jákvæð áhrif á nærsamfélagið?

Tilnefningar óskast sendar á netfangið [email protected] fyrir miðnætti þann 30. nóvember 2018.

Comments are closed.