Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu

Í byrjun árs 2017 skrifuðu rúmlega 300 fyrirtæki undir yfirlýsingu um Ábyrga ferðaþjónustu. Guðni Th. Jóhannesson, forseti, er verndari verkefnisins. Stjórnendur fyrirtækjanna lofuðu að setja sér skrifleg markmið fyrir árslok um umhverfis- og öryggismál, réttindi starfsfólks og að hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið.

Á fimmtudaginn er Dagur Ábyrgrar ferðaþjónustu þar sem þátttakendur í verkefninu hittast, bera saman bækur sínar og fá innsýn í nýjar aðferðir, nýjar áherslur og stöðu verkefnisins. Dagurinn verður haldinn hátíðlegur í Húsi Vigdísar fimmtudaginn 6. desemberkl. 08.30-10.00.

Forseti Íslands tilkynnir hvaða ferðaþjónustufyrirtæki hlýtur titilinn fyrirmyndarfyrirtæki í Ábyrgri ferðaþjónustu. Allir velkomnir en mikilvægt að skrá sig.

Dagskráin: 

Kl. 08:30 Ketill Berg Magnússon
— Hvað höfum við lært um sjálfbærni hjá ferðaþjónustufyrirtækjum?

Kl. 08.45 Vilborg Arna Gissurardóttir
— Vextir ábyrgðar – ræktun og uppskera.

Kl. 09.05 Guðni Th. Jóhannesson
— Forseti Íslands tilkynnir hvaða ferðaþjónustufyrirtæki er til fyrirmyndar í Ábyrgri ferðaþjónustu.

Kl. 09.15 Verðlaunahafi segir nokkur orð

Kl. 09:30 Pallborðsumræður
Inga Hlín Pálsdóttir, frá Íslandsstofu, verðlaunahafi (fyrirmyndarfyrirtæki í Ábyrgri ferðaþjónustu), Ásta Kristín Sigurjónsdóttir frá Íslenska Ferðaklasanum og Óskar Jósefsson frá Stjórnsstöð ferðamála.

Fundi stýrir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF

Skráðu þig hér

Comments are closed.