Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2017

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta Kuðunginn fyrir árið 2017. Kuðungurinn verður afhentur á Degi umhverfisins 25. apríl.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 25. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2017″, á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Frekari upplýsingar má finna á vef Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2018/02/27/Oskad-eftir-tilnefningum-til-Kudungsins-2017/ 

Comments are closed.