Hvatningarverðlaun jafnréttismála

— óskað er eftir tilnefningum

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins,  Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands óska eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2018 sem verða afhent þann 19. nóvember næstkomandi. Sérstakur samstarfsaðili verðlaunanna er UN Women á Íslandi. Verðlaunin afhendir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar.

Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er ætlað að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem hafa stuðlað að jafnrétti á markvissan hátt innan sinna fyrirtækja og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.

Frestur til að senda inn tilnefningar er til 13. nóvember nk., kl. 17. 

Leitað er eftir tilnefningum frá fyrirtækjum þar sem áhersla er lögð á neðangreinda þætti í starfsemi þeirra:

  • Tekið er mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins.
  • Jafnrétti kynjanna er í hávegum haft í innri og ytri samskiptum fyrirtækisins.
  • Jöfn hlutföll kynjanna í stjórn, stjórnendastöður og aðrar almennar stöður.
  • Auknum möguleikum beggja kynja til starfsframa.
  • Jöfnum launum kynjanna.
  • Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.

Sérstaklega er leitað að fyrirtækjum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Stefna fyrirtækis í jafnréttismálum hefur skýran tilgang og markmið.
  • Jafnrétti hefur fest rætur og sýnt er fram á varanleika.
  • Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af jafnrétti.
  • Jafnréttissýnin er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki.
  • Sýnt er frumkvæði og nýsköpun sem stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna

Nánari upplýsingar um tilnefningarnar má nálgast hér (pdf). Hægt er að senda tilnefningu á [email protected] eða með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Tilnefna fyrirtæki

Comments are closed.